13.2.06
::france beibí

...ég er spennt/stressuð! Veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér . . . annað hvort er maður það stressaður að ganga frá lausum endum að maður fái flæðandi og blaæðandi magasár á stærð við fíl. Eða að maður sé það spenntur að maður geti vart huxað fyrir eftirvæntingu. Í augnablikinu líður mér einsog litlu barni á leiðinni í Disneyland en það er þá bara tímaspursmál hvenær ég fæ vott af næsta kvíðakasti aftur.


Uuuuu lordy! Verð að fara í gegnum ferðatöskuna í 7. skipti. Ég get alveg lofað ykkur að það er bara miklu meira f**kin mál að pakka niður í ferðatösku, til svona lengri tíma, en þið getið nokkurn tímann ímyndað ykkur! Ógrynni af drasli sem maður getur ekki dregið andann án. Ég var alltaf með kjarnann sem ég bara verð að taka með mér og svo var ég með svona 4 kanzki bunka sem ég átti alveg afskaplega erfitt með að velja úr . . . og þar sem að ég vil líta á geisladiska safnið mitt sem heilagt hof þá tími ég ekki að taka neina diska með mér. Brá frekar á það ráð að skrifa alla uppáhalds diskana mína en það er nú enginn smá fríkin vinna. Stend bara sveitt í því núna. . . Annarz verður þetta alveg svakalegt ævintýri. Byrja á því að fara viku til London í viku svo er það bara France beibí í 4 mánuði og svo verður eflaust ferðast einhvað meira. . .ítalía, Amsterdam, Hróaskelda tec. . .svo sjáumst við bara einhverntímann seint í sumar, reikna ég með.

Fer að líða að því að mamma skutli okkur Ástrós á flugvöll. Vil þá bara nýta mér tækifærið og þakka Telepathetics, PAN og Truckload of Steel og vinunum og fjölskyldumeðlimunum sem mættu eiturfersk til að kveðja okkur stöllurnar. Held að ég hafi sjaldan skemmt mér jafnvel lengi . . .ég ber mikla ást til ykkar beibs. . .yeah yeah



Farvel Franz


Skrifað af Little red riding hood
2 orð í belg    


4.2.06
::I like to play it tough

Svona er þetta þegar maður hefur ekkert að gera og er að dúlla sér á netinu þá finnur maður karíókí útgáfu af laginu Kick it! :p

Strákarnir syngja Iggy...

...og stelpurnar syngja Peaches

 

 

 

Kick it, kick it, kick it



Currently listening to:
You're a Woman, I'm a Machine
By Death From Above 1979
    Read Review



Skrifað af Little red riding hood
1 orð í belg    


13.1.06
::boxer og hlírabolur
Þrefallt húrra fyrir áramótunum, því þetta voru ein bestu áramót sem ég hef haldið! Þvílík gleði og kærleikur

...æjj ég er svo andlaus einhvað! Hef fullt að segja en hef ekki metnað í að skrifa það niður! Engin leiðindi eða neitt þannig, bara afleiðingar þess að snúa sólarhringum við og ætla sér að vakna snemma en gerir það svo aldrei! hehe... Skóli lífsins folks, lærir fullt af honum! :p
Er búin að halda mig inní í allan dag! Líst ekkert á þennan dag, föstudagurinn 13. . .til hvers að fara út ef maður þarf þess ekki, og hvers vegna í ósköpunum ætti maður að klæða sig í föt fyrir kvöldmat! Það er ekki einsog þú sért á leiðinni út :p




ég og Sonja erum álíka seinheppnar og ættum því báðar bara að halda okkur inni í tilefni dagsins og ekki líta eitt augnablik út!
plus þá á þessi undurfagra mey afmæli á morgun... og það eru ekki allir sem fá að halda uppá tvítugsafmælið sitt tvisvar :p




bæ beibs


Currently listening to:
Worst Case Scenario
By dEUS
    Read Review



Skrifað af Little red riding hood
orð?    


25.12.05
ullabjakk....
...jólin hjá mér eru svo snauð af gleði hjá mér að það er sorglegt! Má rekja það beinleiðis til vinnunar minnar! Ógeðsleg framkoma í fólki (sem á engann rétt að vera ógeðsleg skrímsli í framkomu við aðra) og viðbjóðslegt jóla fríkin stress!!!
Hvað varð um að dreifa jólakærleiknum!?! . . .

..en jólin eru nú ekki alslæm, því þá get ég hlustað á þetta => Christmastime



Svo er ég vízt skuldbundin að skella þessu á bloggið mitt. Kommentið e-ð og ég skal svara þessu um ykkur:
1) Ég segji þér e-ð handhófskennt um þig
2) Ég segji þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3) Ég segji þér hvaða bragð minnir þig á mig
4) Ég segji þér frá fyrstu minningunni um þig
5) Ég segji þér hvaða dýr þú minnir mig á
6) Ég spyr þig að e-u sem ég hef lengi velt mér fyrir um þig
7) Lái ykkur það ekki þó þið setjið þetta ekki á bloggið ykkar


Hafið það samt gott um jólin beibs! Kæleikur og kátína :*
berglind


Currently listening to:
Mellon Collie and the Infinite Sadness
By Smashing Pumpkins



Skrifað af Little red riding hood
11 orð í belg    


29.11.05
::allow me to show the way wich I adore you....
Seinustu vikur hafa verið frekar viðburðarríkar. Ég er loxins bara komin í eina vinnu núna, er aaalveg búin að floppa í stjórnmálafræðinni, fór á White Stripes og Sigur Rós, búin að vinna rídikjúöslí mikið og fór hamförum í drykkjuskap seinasta föstudag! öösss söss söss ljótur leikur þar á ferð

En þó stendur það uppúr að ég var tvisvar í sömu vikunni troðin hálfnaktri í svona stóra, hvíta og alltof víða spítalaskyrtu! Svo virðist vera sem að læknastéttinni þyki það afskaplega getnaðalegt  . . . 


Kitl alert!!!!

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey
mastera þvergripin

troða mér í hljómsveit

gefa út plötu (ansi hæpið en maður má láta sig dreyma)

sjá Pixies á sviði (..wait a minute! Búin að gera það! Meira að segja þrisvar!!!!!)

stækka um svona ca 10 cm

endurgreiða mömmu allann tannréttingarkostnaðinn minn

fara til jamica ... ya man

7 hlutir sem ég get gert
hlustað á tónlist klukkutímum saman

saumað og hannað föt

lesið og skrifað frönsku (..get harla talað hana þó)

drukkið tæplega 7 kaffibolla á innan við klukkutíma ...uss suss

er sjálflærð í svona html nölla dæmi

verið rídikjúöslí witty

verið kaldhæðin og með blásvartan húmor

7 hlutir sem ég get ekki gert
vakna og sofnað snemma

orðið stjórnmálafræðingur

verið án tónlistar í heilan dag

haldið kúlinu undir pressu

lyft 140 kílóum í bekkpressu

lesið nótur

Drukkið mikið af Hot n´ Sweet og haldið skynseminni líka

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið
kótilettur ... mhhmm

Millisítt  og liðað hár (70´s klipping)

smá nölla legir en samt eiturnettir

góður tónlistarsmekk og mikið inn í tónlist

spilar á hljóðfæri

60´s - 70´s klæðnaður í bland við indy/alternative klæðnað

sillí húmor

7 frægir karlmenn sem heilla mig
Ingibert Snær kyntröll, ekki enn orðinn frægur but you´ll see :p

Jimi Hendrix

Jim Morrison

Trent Reznor

Jared Leto

Johnny Depp

Cedric Bixler Zavala

7 hlutir sem ég segji oftast
ya man

getnaðalegur

eiturnett

ja sei sei

ég fíla´ða

good god!!!

gleði/kærleikur/hamingja

-----
yeah beibís þar höfum við það! En ég þarf vízt að finna 7 aðra til þess að kitla og það mun verða Lovísa, Ástrós, Gunni Icecold, Sigrún Halla, Salvör,  Geinar og Lilja Guðrún ... enjoy it babes




Af öðrum fréttum þá er lagið Deception með hljómsveitinni Le tigre getnaðarlegt! Fíla myndbandið, tjekkið á því ...


N/p= Deception/ Le tigre

Skrifað af Little red riding hood
3 orð í belg    


12.11.05
Hressandi. . .
 . . . að það sé byrjað að "hausta" aftur. Þessi vetur sem var í seinustu viku var orðinn að vandræðar ástandi. Par example þá þurfti ég að mæta í nýjustu vinnuna mína í seinustu viku sem er í Fossvogsskóla, í rauninni ekki svo ýkja langt frá mon maison í Hlíðunum! Þannig að þegar ég kemst að því að það gengur enginn strætó frá Hlíðinum til Fossvogsskóla þá er mér litið út um gluggann og sé þar úti að það er heiðskýrt og þessi fallegi snjór yfir öllu, þá bregð ég á það ráð að hreinlega labba heiman frá og inní Fossvoginn. Hugsaði með mér að framundann væri hressandi göngutúr á þessum fallega degi. Snjórinn beið eftir mér þarna sakleysislegur og glitrandi í sólinni með skjanna hvíta púffsnjóinn sinn en raunin var sú að þarna var minn erkifjandi að verki og faldi sig undir öllu sakleysinu . . . helvítis hálkan!!

Eftir að hafa ráfað um úti í 10 mínutur eins og hífuð kind þá var ég alvarlega byrjuð að efast um þessa gönguferð mína og bölvaði sjálfri mér fyrir að vera ekki búin að fjárfesta í bíl eins og allir aðrir skynsamir námsmenn! En þrautseigja mín hélt mér þó gangandi og áður en ég vissi af þá var ég kominn að Kringlunni . . . ókey ókey, þá var ég hálfnuð og ekki möguleiki að ég bakkaði útúr þessu helvíti núna.

Þá virtist sem að fyrri helmingur ferðarinnar hafi aðeins verið upphitun því að nú beið mín bara enn meiri snjór, enn meiri hálka og þar birtist líka annar óvinur . . . helvítis slabb snjórinn!
Nú var orðið sífellt erfiðara að leita að jafnvæginu og því mikið álag á mjöðmunum og lærunum. Og á þessum tímapunkti var ég búin að segja "ó mæ goood" svo oft að það hafði ekki lengur neina merkingu fyrir mér. Svo kom lokaþrautin í þessari ævintýraför en það var þessi langa, langa brekka niður að Fossvogsskóla svo ég hugsaði bara "to hell with my dignity and everything that´s sacred." Ekki séns að fara niður þessa virkilega hála brekku án þess að missa alla sjálfsvirðingu í leiðinni, sérstaklega þar sem ég sá nokkra krakka þarna niðrí bókstaflega á hausnum. Mér hafði tekist að fara svona langt án þess að renna neitt, and now it has come to this. Svo það var bara slæææææææd all the way down, og sjálfsvirðinginn fauk þar með úr fangi mínu eins og lítil fiður út í buskann. . .

Svo eftir tæplega klukkutíma langann, langann, langann göngutúr þá komst ég loks á leiðarenda, öll frekar krambúleruð og sjúskuð. :/



En milli þess sem ég stunda þrennar vinnur og háskóla þá á ég það til að yrkja eitt kvæði eða svo



Veður óblíða
Veður óblíða
Vekur upp ólga og kvíða
Útum líkamann marblettir víða
Uppúr götunum fólk reynir að skríða
hálkan búin að hefna sín á þeim og hýða

Mikið er þessi vetur lengi að líða 
Nú þarf maður að bíða bíða bíða

Vörtur Stinnar
Eins og pinnar
Hvenær ætlar þessu að linna
r? 

Saltkjöt og baunir
túkall

-------------


Af öðrum fréttum er það að kojufyllerí er góð leið fyrir fátæka námsmenn að spara peninga og ætti því að vera stunduð oftar . . .

Og beatles eru æði . . . nothing new there . . .

beibís





N/p= Soulwax- much against everyone´s advice

Skrifað af Little red riding hood
3 orð í belg    


26.10.05
Airwaves . . .
Stórskemmtilegur viðburður! Þó reyndar ekki eins skemmtilegt og maður hafði ímyndað sér, þá sér í lagi þessar godforsaken biðraðir sem mynduðust fyrir framan flesta staðina! En skemmtilegt engu að síður. . .

Hljómsveitirnir voru ekki af verra taginu en það voru samt margar sem floppuðu alveg all svakalega. . .
Juliette Lewis


Highlights hátíðarinnar:

Jakobínarína= ef ég væri nokkrum árum yngri þá væri ég ástfangin af þessum dúllum! Snúllí dúllí kjútí pæs!.!.!.
Pétur Ben= frábær maður, frábær hárgreiðsla, frábær gítarleikari, frábær lagasmiður
The Zutons= fríkin awsome
Jagúar= Vááá! Þvílík stemmning . . . dansað upp á borðum og stólum!!
Jeff Who= Diskó rokk. I like it, I like it alot!






Bassinn í Jeff Who . . . mmmMMmM
Vonbrigði hátíðarinnar:

Benni Hemm Hemm=
ekki alveg eins mögnuð og hún hafði verið kynnt fyrir hátíðina! Doldið ofmetin
Mike Patton= Virðingarstig frá mér fyrir að vera frábær tónlistarmaður! En þetta sóló dæmi var ALLS ekki að gera sig . . . squuueeees!
Ensími= Yeap! It pains me to say this þar sem að ég er mikill Ensími fan! Tóku bara ný lög og töluðu bara ensku. . .  HVAÐ VARÐ UM FRÍKIN KAFBÁTAMÚSÍK??!!?!
Foghorns= Ætlaði aldrei að taka enda . . . feiti gæjinn með þríhornið bjargaði þessu frá því að brenna í helvíti 
Singapore Sling= Que? Donde esta? Hvað kom fyrir þessa hljómsveit eiginlega?? Og hvaða falska gerpi var þetta sem söng bakröddina? Ég bara ekki skilja gott . . . donde esta?




Svo voru þarna líka hljómsveitir standa sig alltaf vel
Pan
Benny Crespos Gang
Telepathetics
Cynic Guru etc etc etc. . .

- - - - - - - - - - -

En hvað er betra að vera á góðum tónleikum, sötrandi góðan bjór með besta fólki í heiminum?!?! You tell me. . . .gleði. . . hamingja . . . . -->Airwaves myndir<--




















N/p= Jaguar - Watermellon woman

Skrifað af Little red riding hood
3 orð í belg    


17.10.05
Má kynna fyrir ykkur!!!. . .
. . . fegurð, sjarmör og frussandi glæsileika!

. . . stolt mitt og yndi

Ingibert Snær Erlingsson f. 3. marz ´05

Flottasti drengur í algeiminum! Fæddist með þessa eiturnetta barta



Bullandi kúlisti




Pimpin´




One love :* ;p




N/P= Jeff Who - Golden Age
 

Skrifað af Little red riding hood
orð?    


10.10.05
Klukk bull

Eftir að hafa eitt a.m.k. rúmlega klukkutíma úr mínum verðmæta tíma í að gera þetta klukk-dæmi ...ritskoðun endurskoðun ritskoðun... þá er þetta loxins komið! Out of my head, out of my life.
So here goes;

  • Þegar ég var yngri þá var ég hálfgert undrabarn. . . Ég kunni að plúsa, mínusa, lesa, stafrófið og telja upp í 100 áður en ég byrjaði í fyrsta bekk. Ég og ein önnur stelpa í bekknum mínum kepptumst um að vera hæst í bekknum. Ég þótti svo skýr í kollinum að fólk sá fyrir sér verðandi dúx úr MR. 
    Ég var líka sérlega listræn. Samdi mikið af ljóðum, sögum og leikritum og ég eyddi miklum tíma í að teikna og mála. Ég átti stórt hljómborð sem ég samdi oft lög á.
    Auk þess að vera fáranlega gáfað barn sem var mjög listrænt þá stundaði ég líka mikið íþróttir, þ.á.m. körfubolta, fótbolta, sund og badminton. Oh yeah, og ég dýrkaði að hjóla út um allt, kunni meira að segja að gera listir á hjólinu mínu.
    En svo umbreyttist allt þegar ég varð 10 ára... og hvað er ég núna 10 árum eftir það? Appaling failure...

  • Aaahh tónlist! My life, my pleasure. Hvað myndi ég gera án tónlistar?
    Þar sem að ég hef ekki verið nógu athafnasöm að semja texta eða ljóð þá sækji ég mjög mikið í tónlist sem endurspegla mig og líf mitt. Thus dýrka ég par example Buckley, Interpol og Pumpkins.
    En pixies eru vissulega efst á listanum mínum :p

  • Ég fékk nýjan kassagítar í afmælisgjöf! S.s. á þrjá gítara núna... Og hvernig gengur að læra á þann fjanda, you ask... it´s a work in process!

  • Ég litaði einu sinni óvart hárið mitt dökkt! Þvílíkur brandari það! Mamma fékk nærrum því hjartastopp þegar hún sá litla rauðhærða engilinn sinn með dökkt hár. .

  • Ég er nýkomin úr fjögurra ára ástarsambandi. Það er fáranlega ringlandi hlutur. No longer a item, more like a lone ranger  . .
    En er reyndar nokkuð skotin í einum dreng núna sem mér finnst fallegri en allt! :p . . . All you need is love!
Reglan segir að ég þurfi að finna 5 aðra bloggara og "klukka" þá. Held að flest allir séu búnir að gera svona klukk dæmi nú þegar svo ég veit ekkert hverja ég að velja sem næstu fórnalömb. Ekki nema Hress-gengiðgeti kreist fram einhvað hressandi klukk blogg





p.s. var að updeita hinar síðurnar, finally! Setti inn fleiri mynda linka


N/p= Blonde Redhead - Equus

Skrifað af Little red riding hood
1 orð í belg    


8.9.05
Do do do ya do ya wanna?!. . .
 . . . Lucky lucky, you´re so lucky

Enn í góðum gír eftir Franz tónleikana! Talandi um lucky lucky þá tókst mér að týna Franz miðanum mínum, sem ég fjárfesti í einhverntímann í apríl, örfáum vikum fyrir tónleikana svo ég þurfti að kaupa annan miða. . . svo ég eyddi í kringum 10þús í Franz tónleikana!

 . . . Lucky lucky I´m so goddamn lucky 

Sé svo sem ekkert eftir því núna, en það er líka vegna þess að ég fæ ekki kreditkortareikninginn fyrr en í næsta mánuði! Ekki frá því að ég fái bitra eftirsjá þá. . .

 . . . Gonna make somebody love me, now I know now I know now I know I know that it is you
 . . . Do do do ya do ya wanna

Ég fíla þessa Franz tízku! Svona 60/70´s millisíð og wavy hárgreiðsla, brúnn leðurjakki eða svona rússajakki einog ég kalla það, einsog hann sé frá seinni heimstyrjöldinni. Fullt af þannig fýrum á Leeds festival, enda fannst mér ég ætti vel heima þar. . . einhvað svo kósí! 






Langaði svo bara að skella einni mynd af mér og Sonju vinkonu hérna! Hittumst á Kaffi Vín fyrr í vikunni. . . gleðigleði!:




Ætlaði samt að setja þessa mynd fyrst!:




En hætti svo við það þar sem að hún virðist draga fram ekki svo aðlaðandi svipbrigði hjá okkur báðum. . .





N/p=> Franz Ferdinand - do ya wanna

Skrifað af Little red riding hood
2 orð í belg    


Next Page